30 ára kona óskar eftir aðstoðarkonu
30 ára kona í Vesturbæ Reykjavíkur óskar eftir aðstoðarkonu í hlutastarf. Æskilegt er að viðkomandi sé 27 ára eða eldri. Starfið gengur út á að aðstoða konuna við daglegar athafnir. Helstu áhugamál hennar eru prjónaskapur og önnur handavinna, ásamt kórsöng. Gott er að aðstoðarkonan kunni að prjóna eða hafi áhuga á að læra það. Á heimilinu er lítill hundur.
Þær vaktir sem á vantar eru aðra hvora helgi frá föstudagskvöldi til sunnudagskvölds.
Starfið byggir á hygmyndafræðinni um sjálfstætt líf fatlaðra einstaklinga og eru laun samkvæmt sérkjarasamningum NPA miðstöðvarinnar við Eflingu og Starfsgreinasambandið.
Hæfniskröfur:
- Þolinmæði
- Frumkvæði
- Góð samskiptahæfni
- Að vera hvetjandi
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur en ekki skilyrði
- Íslenskukunnátta er skilyrði
- Bílpróf og aðgengi að bíl er skilyrði
Starfið hentar vel með skóla eða annarri vinnu.
Vinsamlegast sendið umsóknir á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.