Sex námskeið í NPA námskeiðsröð NPA miðstöðvarinnar

2022_breyttdagskra.jpg

4. nóvember 2021, uppfært  15. febrúar 2022

NPA grunnnámskeið NPA miðstöðvarinnar veita alhliða þekkingu og góða innsýn í NPA. Námskeiðið er þróað undir handleiðslu og út frá forsendum NPA notenda. Ekkert um okkur án okkar!

SKRÁNING Smellið á þennan hlekk.

 VETURINN 2021-2022

NÁMSKEIÐ 1: HUGMYNDAFRÆÐI NPA OG SAGA SJÁLFSTÆÐS LÍFS
Síðasti skráningardagur 24. október 2021

Fyrir verkstjórnendur aðstoðarfólk og aðstoðarverkstjórnendur
Miðvikudagur 27. október, kl. 13:00-16:00

NÁMSKEIÐ 2: HLUTVERK, ÁBYRGÐ OG SAMSKIPTI Í NPA

Síðasti skráningardagur 16. nóvember 2021

Fyrir verkstjórnendur
Fimmtudagur 18. nóvember, kl. 13:00-16:00

Fyrir aðstoðarfólk
Fimmtudagur 18. nóvember, kl. 13:00-16:00

Fyrir aðstoðarverkstjórnendur
Fimmtudagur 18. nóvember, kl. 13:00-17:30

Tvö námskeið verða haldin á sama tíma. NPA verkstjórnendur sækja annað námskeiðið en aðstoðarfólk og aðstoðarverk­stjórnendur hitt. Að auki sækja aðstoðarverkstjórnendur stutt námskeið þar sem farið er nánar yfir það sem snýr sérstaklega að aðstoðar­verkstjórnendum. 

NÁMSKEIÐ 3: HLUTVERK UMSÝSLUAÐILA - HVAÐ GERIR NPA MIÐSTÖÐIN? 

Fyrir verkstjórnendur
Janúar 2022 (nákvæmari tímasetning auglýst síðar).

Fyrir aðstoðarfólk og aðstoðarverkstjórnendur
Janúar 2022 (nákvæmari tímasetning auglýst síðar)

NÁMSKEIÐ 4: AÐBÚNAÐUR OG HOLLUSTUHÆTTIR, LÍKAMSBEITING OG HJÁLPARTÆKI
Febrúar 2022.

NÁMSKEIÐ 5: NPA KJARASAMNINGAR, LÖG OG REGLUGERÐIR
Mars 2022.

NÁMSKEIÐ 6: SKYNDIHJÁLP, HUGARFLUG OG VIÐURKENNING
Apríl 2022.

Dagsetning, efni og skráningarfrestur í námskeiðs­hluta 2, 3, 4, 5 og 6 auglýst síðar.

Námskeiðin þarf ekki að taka í réttri röð. Hver námskeiðshluti er sjálfstætt framhald af þeim sem var á undan.

MARKMIР
Að NPA ­verk­stjórnendur, NPA aðstoðarfólk og aðstoðarverk­stjórnendur öðlist öryggi og færni í hlutverki sínu. Jafnframt að valdefla NPA not­endur, fræða aðstoðarfólk og þar með renna sterkari stoðum undir framkvæmd NPA.

SKIPTING Í HÓPA
Það ræðst af viðfangs­efni námskeiðshluta hverju sinni, hvort NPA verkstjórnendum og aðstoðarfólki/aðstoðar­verkstjórnendum sé kennt saman eða í sitt hvoru lagi.

 

FREKARI UPPLÝSINGAR UM NÁMSKEIÐIN

Verð Ókeypis fyrir félagsfólk/aðstoðarfólk NPA miðstöðvarinnar. Stakt námskeið, kr. 2.000 fyrir fólk utan NPA miðstöðvarinnar. Öll námskeiðsröðin, hluti 1-6, kr. 9.000 fyrir fólk utan NPA miðstöðvarinnar. Ef viðkomandi missir af námskeiðshluta er hægt að sækja þann hluta næst þegar sá námskeiðshluti er í boði.

Hvar
Húsnæði
NPA miðstöðvarinnar
Urðarhvarf 8
Inngangur A, 2. hæð
203 Kópavogur

Aðgengi Fullt aðgengi.

Fyrir hverja Námskeiðið er öllum opið en félagsfólk og aðstoðarfólk NPA mið­stöðvarinnar nýtur forgangs. Takmörkuð sæti í boði.

Kostnaður Frítt fyrir ­félagsfólk, aðstoðarfólk og aðstoðarverk­stjórnendur NPA miðstöðvarinnar. Kr. 9.000 fyrir námskeiðsröðina fyrir aðra og kr. 2.000 fyrir einn hluta.

Leiðbeinendur Ráðgjafar NPA miðstöðvarinnar, NPA verkstjórnendur og ýmsir sérfræðingar.

Fjarnámskeið Rafræn námskeið eru í vinnslu og verða í boði síðar. Opið er fyrir ­skráningu á biðlista.

Sóttvarnir Húsnæði NPA miðstöðvarinnar er rúmgott og auðvelt að viðhalda fjarlægð. Spritt og grímur á staðnum.

Viðurkenning Þátttakendur fá viður­kenningar­skjal í lok námskeiðs.

Veitingar Léttar veitingar í hléi.

English speaking The course is in Ice­landic but will be offered in ­English in the future. Waitlist registration is open.

Skráning og nánari upplýsingar www.npa.is/namskeid

Fyrirspurnir Sendist til This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

NPA miðstöðin